Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Leit

Atburðarteljari

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur

karabíahafið:D

12. maí 2008 klukkan 03:35
Ætli ég veðri ekki loksins að lára vita að ég hafi komist heilu og höldnu frá mexico.....?

Allavega komin ein og hálf vika síðan ég kom heim svo tanið er farið að dofna:( Annars var ferðin mjög skemmtileg, eyddum flestum dögum í Belize á eyju sem heitir San pedro. Hún er ótrúlega krúttleg. Eiginlega allit keyra golf bíla og það er bara nokkrir venjulegir bílar þar. Ég hef aldrei á æfi minni séð jafn fallegan sjó eða baða mig í jafn hlýjum sjó... 83 gráður farenheit sem eru held ég yfir 25 C....pælið í þ´vi haaaa... Svo fórum við að kafa, ekkert smá flott, næst stærsta kóral rif í heimi!! 

Ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira um ferðina núna... 
Lífið er búið að vera gott síðustu daga... búin í frjálsum, fullt af hlutum í gangi... Veðrið  er að verða betra.. á að nálgast 30 sitga hita næstu helgi. Ég ætla að skrópa í skólann næsta föstudag og við krakkarnir ætlaum að hanga niðrá vatni allan daginn...jeij ég hlakka til 

Í dag er einn og hálfur mánuður þangað til ég kem heim:D ég hlakka svo til að ég get ekki lýst því með orðum!

Þetta er nóg í bili...
Arnrún Þorsteinsdóttir

Mehíkó

15. apríl 2008 klukkan 01:37
Sælt veri fólkið...

Ætlaði bara að koma með stutta tilkynningu að eftir viku verð ég stödd hvorki meira né minna en í MEXICO.... Jessör... Er sem sagt að fara í 10 daga ferð til Mexico og Belize með Bill, Juliu og David. Ég er subbulega spennt.... um 30 stiga hiti... baða sig í karabíska hafinu.... kafa.... sólbað....sweeeeeeet:D

Þar sem ég frétti að það væri snjór heima á býst ég við að allir öfundi mig voða mikið....

Svo er Prom á laugar daginn... verður örugglega sweet, er samt með fríkin 4 marbletti á sköflungunum:( 
Var ekki tilnefn sem Prom queen.... fyrirgefið stelpur, ég vona að þið getið enþá verið vinkonur mínar.... ég veit að þetta var eini tilgangur ferðarinnar... en ég brást ykkur...

Nenni ekki að skrifa meira í bili.... þarf að undirbúa mig andlega fyrir mót á morgun....

Endilega kommentið, hef ekki fengið of mörg uppá síðkastið haaaa....

ást....
Arnrún Þorsteinsdóttir

það er komin að því:)

31. mars 2008 klukkan 00:17
Jæja kominn tími á blogg? veistu ég hel það...

Ég hef verið svona löt að blogga undn farið því ég er einfaldlega bara löt hehe.. hef heldur ekki haft frá n einu sérstöku að segja svo sem..nema

Pabbi kom 1 Mars! Eða ég flaug upp til canada (vancuver) til að hitta hann og við vorum að skíða í WHISTLER í 4 daga... það var ekekrt smá gaman, fengum 2 fullkomna daga. sól og gott færi. Hinir dagarnir voru alveg fínir líka. Við gerðum svo sem ekkert mikið annað að skíða, vorum alltaf dauð þreytt eftir 6-7 tíma í fjallinu. Gamli kallinn stóð sig samt bara nokkuð vel við að halda í við mig hehe.

Eftir skíðadagana leiðum við bíl og keyrðum niður til vancuver. Eyddum einum degi þar bara í að skoða okkur um, mér líkaði mjög vel við vancuver! Pabbi keypti handa mér prom kjól og svona, canada meira stylish en usa hehe... Svo um kvöldið keyrðum við áleiðis til Seatle... eftir eitt ælu stopp og nokkur pissu stop fundum við loksins mótel sem við gátum hugsað okkur að gista á.
Morgunin eftir var herbergið ekki alveg eins gott og kvöldið áður svo við ákváðum að fara ekki í sturtu í gula og brúna sturtu klefanum og fundum bara næsta denny´s og fengum okkur ekta amerískan morgun mat.

Eyddum deginum í Seatle.. löbbðum um pike place market fórum uppí the space needle og kíktum svo aðeins down town... Verð eiginlega að segja að vancuver var meira fyrir minn smekk en það var mjög gaman að koma til seatle. Seinni partinn keyrðum við af stað til oregon..lentu í þvílíkri traffík útúr seatle og um 35 mílur tóku okkur 2 tíma hehe....

Vð komumst loksins til Lebanon Oregon um 9 leytið... Pabbi eyddi helginni með fjölskyldunni minni sem var bara mjög fínt, hef svo sem ekkert mikip um það að segja. Hann flaug svo aftur heim á mánudeginum:( það var ekekrt sma´gott að fá hann.... er samt enþá með pínsu heimrá hehe..

Vikuna eftir var fyrst frjáls íþrótta mótið mitt ( ég er sem sagt í Track liðinu i skólanum hehe) það var bara gaman.... ég er reyndar als ekki góð ennn ég þarf á hreyfingunni að halda!!! 

Síðustu helgi byrjaði vor fríið ( spring break). Ég og Júlía ásamt 3 öðrum skipti nemum og einni hóast fjölskyldu lögðum af stað til Kaliforníu á laugardeginum. 
Þetta var ekkert smá skemmtileg ferð. Við vorum 5 stelpur á aldrinum 16-19 tveir þýskir strákar (17 og 18) og ein mamma sem var mjög skemmtileg.
Á fysta deginum okkar fórum við á ströndina... ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvað það var heitt því það var smá vindur svo ég nældi mér í smá bruna...ekkert alvarlegt samt hehe.
Annan daginn leigðum við brimbretti og lærðum að surfa... mér fannst að geggjað gaman, ekkert alltof erfitt því öldurnar vorum frekar litlar enn maður verðum mjög þreyttur við að synda út eftir hverja öldu... 
Þriðja og fjórða daginn fórum við til San Francisco. Það var mjög gaman, löbbuðum um, skoðuðum the golden gate bridge og svona. Versluðum aðeins þó ég hafi nú valla keypt neitt. 
Fimta daginn ( sem var fimmtudagur) fórum við í tívolí sem er kallað six flags... það er samt líka sædýra safn. Það var mjög gaman, fór auðvitað í öll stóru tækin (H) hehe hefði varði skemmtilegra ef raðirnar hefðu verið styttri enn engu að síður mjög skemmtilegt.
Við keyrðum heim á föstudeginum. Komum við á In-n-Out burger sem er frægur hamborgara stður í cali... mér fannst það bragðast soldið einsog tomma borgari sem er ekki slæmt!
VIð gistum öll á föstudags nóttinni hjá mömmunni sem fór með okkur, leiðum spólu og höfðum kósí. Ég og Júlía gistum svo aðra nótt því fjölskyldan okkar var ekki heima.

Ég kom heim fyrr svona tveiur tímum og er búin að vera súper löt, er ekki einu sinni búin að fara í sturtu hehe...

Ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga núna... Prom er 19 apríl svo ég verð eiginlega allavega a segja frá því..

Vona að einhver hafi nent að lesa þetta allt og plíííís kommenta, alltaf gaman að heyra frá fólki!!

Sakna ykkar allra ekkert smá! Hlakka svooo mikið til að koma heim..
ÁST

Arnrún Þorsteinsdóttir

i skolanum, i skolanum....

15. janúar 2008 klukkan 18:04
Eg er i skolanum og mer leidist frekar mikid. A ad vera ad skrifa ritgerd en klaradi hana eiginlega i gaer svo tad er ekkert ad gera. Tad er ekki haegt ad fara a msn eda myspace svo aetli eg verdi ekki ad blogga.

Eg veit ad eg hef ekki bloggad i mjog langan tima en eg nenni ekki ad rifja allt upp, jolin voru fin, aramotin omurleg oooog svo er skolinn svo sem agaetur.

Naestu helgi er winter formal sem er nanast einsog prom. Eg er buin ad kaupa mer finan kjol og aetla ad vera i fallegu skonum sem pabbi gaf mer i ammogjof. Eg og marrydith aetlum ad lata trunadar manninn(konuna) hennar mala okkur tvi hun er makeup artist svo tad verdur frekar sweet. Held eg aetli ad krulla a mer harid eda lata juliu gera tad. Dateid mitt er Steven vinur minn vid aetlum ad fara ut ad borda med colton og alexis. Tau eru mjog fin. Svo turfum vid ad lata taka myndir og allt tetta typiska ameriska dot. Eg veit ekki hvort eg geti farid eitthvad eftir ballid tvi utivistatiminn minn er 12! tad sokkar, vona ad tau geri undantekingu.

Onnur storfrett er ad pabbi aetlar ad koma ad heimsaekja mig 1 mars. Eda eg aetla ad fara hitta hann i Vancuver Canada og vid aetlum a skidi i Wishler sem er vist ekkert sma flott skidasvaedi! Svo aetlum vid ad keyra nidur til oregon ( tekur 8 tima held eg) og stppa kannski i seatle. Pabbi aetlar ad bua hja okkur i nokkra daga, er ekkert sma spennt! Fae lika viku fri fra skolanum sem er ekki verra.

Strakarnr sem eru i tessum tima med mer haetta aldrei ad tala um ad eina sem vid gerum a islandi se ad drepa hvali og tad se eina ahugamilid mitt og blablabla... their halda ad island se frumstaed fiski tjod!...eg nenni svo sem ekekrt ad leidretta tad, teir mega halda tad sem teir vilja....

Held ad tetta se komid nog i bili,frekar pirrandi ad blogga tegar tu hefur ekki islenska stafi..

Drattist nu til ad commenta folk!
lovlov
Arnrún Þorsteinsdóttir

snjóbretta snilli

17. desember 2007 klukkan 02:27
HæHó

Blogg tími loksins!

Síðustu helgi var skiptinema sleepover í eugene. Skiptniemar frá IE sem eru ekki samtökin mín en ég er samt eiginlega með eða eitthvað. Þetta var hjá fjölskyldu sem eru með þýskan strák hjá sér, þau voru mjög nice, elduðu pasta, leigðu spólur og áttu heitan 18 ára strák hehe. Það var gaman að hitta skiptinmea frá öðrum skólum og bera saman bækur sínar. Samt ekkert eitthvað svakalegt stuð því flestir voru þjóðverjar hehe. 

Á mánudagskvöld fór ég með Alyssu til Albany, þurftum að versla föt því það var heimsókn í college á þriðjudaginn og hvorug okkar átti eithtvað annað en galla buxur eða jogging. Keyptum einhverjar hallærislegar dress pants og skyrtu. Á leiðinni heim var mjög dimmt og þoka, við héldum að við myndum deyja! 
Ég gisti svo hjá alyssu, vorum svo frekar seinar daginn eftir því mamma hennar vildie kki leyfa henni að fá bílinn sem hún vildi og eitthvað drama hehe.

Þegar við komum í skólann voru allir voða fínir svo ég var ánægð að ég keypti eitthvað. Marrydith svaf yfir sig svo hún var eiginlega eina í galla buxum og eihverju dóti hehe. Tókum svo skóla bus ( svona gulan einsog í bíómyndunum) til LBCC college eða eitthvað álíka. Þetta var til að undirbúa þau fyrir atvinnu markaðinn, fórum í plat atvinnu viðtöl og eitthvað dót. Þetta var alveg fínn dagur, frekar mikið tjill bara. 

Man ekki eftir að hafa gert neitt annað merkilegt í síðustu viki, fór á eina dans æfingu ( veit ég er löt) lærði fyrir 2 próf sem voru frekar easy oooog held að það sé allt og sumt.

Á föstudaginn nánast beint eftir skóla keyrðum við til Bend. Komum þangað um 6, fórum í íþrótta búð og ég keypti mér skíða húfu. Fórum svo bara heim í hótelíbúðina og horfum á video og borðuðum.

Vökunum semí snemma á laugardaginn til að fara uppí fjall. Á leiðinni þangað föttu'um við að ég og julia gleymdum snjóbrettunum sem við höfðum leigt. Það var ekekrt alltof mikil gleði. Bill keyrði okkur alla leið og ég byrjaði á skíðunum mínum meðan strákarnir snjóbrettuðust og bill og julia fóru að ná í dótið. 
Þegar þau komu aftur ákvað ég að prufa snjóbrettið. Fyrsta ferðin var ekki skemmtileg, gat valla staðið meira en 2 sek. og tókst að detta aftur fyrir mig og næla mér í hausverk, rass verk og únliðaverk! En ég lét það ekki á mig fá og hélt áfram og viti men.... Mér tókst að fara heila ferð án þess að detta! bara einu sinni samt en ég er mjög stolt! Fór siðast á sjóbretti fyrir 6 árum held ég og það telst valla með því ég tók það af mér og labbaði niður hahah. En ég skemmti mér allavega mjög vel og ætla pott þétt að fara á bretti aftur. Vil samt til öryggis segja að skíði eru samt enþá uppáhalda til þess að forðast allan misskilning.
Vil líka segja að það var mót i fjallinu meðan ég var þerna og ég var ekkert smá abbó þegar ég sá krakkana arka um í stórsvigsgöllunum! Fékk pínsu lítið tár í augun því ég á aldrei eftir að keppa aftur eða vera með skíðaliðinu mínu uppí strati að frjósa eða vera sveittar eftir mót uppí rúmi og fíflast! GUÐ ég sakna ykkar stelpur!!

Í dag vaknaði ég um 9. Byrjuðum að pakka niður dóti og bera útí bíl og svona. Vorum komin heim um 12 leytið. Ég og Julia þrifum bílinn hennar lísu og gengum frá einhverju dóti. Eftir það talaði ég við mömmu í síman í smá og eftir það þá var ég að tala við maríu á msn og ég lét hana drullast til að downloada skype. Og viti men við töluðum saman í síman í meira en 2 tíma! Einir skemmtilegustu 2 tímar af dvöl minni hér hehehe... Það var ekkert smá gott að heyra í heinni! Getiði trúað því að dvöl mín er næstum hálfnuð og þetta er í fyrsta skipti sem einhver að vinkonum mínum tekur sér tima til að downloada skype og tala við mig HA!! pff hehe... maría getur núna sagt ykkur af eigin reynslu að það er sko ekki mikið mál:D
Vona að þið hinar farið að hennar fordæmi:)

Á mrgun er skóli, mig langar ekki í skólann:( get ekki beðið eftir jólafríi... heil vika eftir samt, of mikið! 

Lisa var að segja að við erum að fara til kaliforníu í vor fríinu, förum til hollywood, malibu beach og disney land ef við viljum:D er voða spent!

Þangað til næst....
Arnrún Þorsteinsdóttir

jessörí

04. desember 2007 klukkan 03:15
Stutt blogg!

Síðasta vika var síðasta vikan af þessari önn ( það eru 3 annir). Þurfti bara að taka 2 lokapróf, gekk drullu vel á efnafræði, er ekki alveg viss með stærðfræði hinsvegar...

Á föstudaginn var jóla konu boð hjá konu systur Bill. Fórum þangað kl. 6.30 borðuðum kvöldmat og svo spiluðum við bingó, voru rúmlega 20 konur/stelpur. allir koma með gjöf og svo vinna allir eina gjöf og geta svo stolið af öðrum ef þeir fá bingó og eitthvað dót, það var mjög gaman. Hitti allar frænkurnar, sem var mjög skemmtilegt. Fyrsta skipti sem ég hitti einhvern sem veit eitthvað um ísland. Jamie(20), ein af þeim hlustar mikið á sigurrós og var eitthvað að spurja útí það og svona.  Allir mjög áhuga samir um ísland og þýskaland!

Á laugardaginn vaknaði ég svo snemma því við vorum að fara á SKÍÐI!! var ekkert smá glöð, bara ein lyfta opin samt en það gerði ekekrt til. Alltaf æðislet að komast á skíði. Varð samt pínu leið eftir á þegar ég fattaði að ég mun aldrei aftur skíða með öllum ármenningunum mínum:( Sakna skíðanna soldið.

Á sunnudaginn fór ég að búa til jóla kransa með dans liðinu. Hluti af fjárölfluninni okkar. Það var bara gaman, litu mjög vel út allavega. 
Seinna um daginn fór ég yfir til Alyssu og við vorum bara eitthvað að slæpast, gisti svo hjá henni.

Vorum líka bara latar í dag, horfðum á American gangster( er hún komin heim?) húm á allar nýjustu myndir sem eru en í bíó. Átum svo bara nammi, fórum í ljós og í Wal mart sem er alltaf stuð.

Var bara að koma heim fyrir stuttu.... Ný önn byrjar á morgun, er frkar stressuð hehe. Og soldið leið því ég er ekki í neinum tíma með Alyssu og allir tímarnir mínir eru í sama kjarna svo ég á ekki eftir að sjá fullt af fólki neitt
 en það verður að hafa það, kannski kynnist ég nýju fólki:)

Held að þetta sé komið gott í bili, ekkert voða stutt

bæjó snúllur
Arnrún Þorsteinsdóttir

hæhó

26. nóvember 2007 klukkan 01:18
Tími á nýtt blogg!

Byrja á síðustu helgi.

Á föstudeginum gisti ég hjá Marrydith því fjölskyldan mín fór til Bend. Við þurftum að vakna kl. 4.30!! því dansliði hittist fyrir utan skólan kl. 5.15....

Tókum rútu til Albany ( svona korter í burtu) því keppnin var haldin í west albany hihg school ( skólinn sem mark og eric eru í).
Byrjuðum á æfingu á gólfinu, ekkert voða mikið að gera fyrir mig og Marrydith því við erum bara managers. Eftir það var svo hár og make up... var ekki alveg að fýla hárið fyrst en svo lagaði ég mitt þannig það var alveg í lagi. Make upið var alveg cool... prufaði gervi augnhár í fyrsta skipti, er að fýla þau.
Eftir að þetta var allt ready keptu stelpurnar í hip hop dansi... þær stóðu sig bara mjög vel og gaman að horfa á hin liðin, flest frekar góð.
Eftir þetta eða um 2 leytið komu strákarnir sem dönsuðu við okkur í dansinum sem ég tók þátt í. Það var frekar fyndið að hafa þá þarna í kringum allar stelpurnar, þeim fannst ekki leiðinlegt þegar búningarnir voru stuttir kjólar eða þröngir samfestingar haaa...
Svo kom loksins að okkur eftir að stelpurnar höfðu dansað lyrical dansinn sinn...
Mér fannst mjög gaman að dansa og við stóðum okkur bara mjög vel að mínu mati, strákarnir skemmtu sér líka mjög vel, ekkert smá fyndið að sjá þá dansa allir í þröngum teyju buxum og bolum með skykkjur og dót...
Við lentum ekki í neinu sæti með þann dans sem var frelar fúlt þv´mér fannst við standa okkur vel! Stelpurnar lentu samt í 2 & 3 sæti með hina dansana.
Restin af þessari helgi var svo bara tjill með Marrydith, ekkert frásögu færandi.

Síðasta vika í skólanum var sweeeeet því það var abra skóli á mán, þri og mið... Gerði ekkert spes fyrren á mið... Fór heim með alyssu eftir skóla og srákarnir pikkuðu okkur svo upp þegar þeir voru búinir á æfingu (steven og derek) Við fórum til albany í mallið því alyssa ætlaði að kaupa buxur...en það endaði bara með að við vorum eitthvað að fílfast og búðar fólkið var ekekrt alltof ánægt með okkur...
Fengum okkur síðan að borða á red robin...Fékk mér ekkert smá góðan piparköku shake!! mmmm.... Verð samt að segja frá því að þjóninn hélt örugglega að ég væri þroskaheft... bæði því strákarnir sögðu að ég gæt ekki talað ensku og að ég væri skrýtinn útlendingur og því ég sullaði niður vatninu minu yfir mig og helmingnum af shakenum mínum yfir borðið!! Var frekar vandræðalegt, mér leið einsog asna!!
Eftir þetta fórum við bara til dereks að horfa á spólu og svo skutluðu steven og alyssa mér heim.

Fimmtudagur var thanksgiving...frí í skólanum svo ég var bara hjálpa við matinn og laga til og svona.
Seinna um daginn fór ég og julia svo að fljúga með Bill. Það var rosa gaman:D flugum bara yfir lebanon og þar í kring, gátum ekki verið neitt rosalegni því getirnir voru að koma.
Fórum svo heim og gestirnir fóru að tínast inn...vorum rúmlega 20... Ég át alveg heilan helling, mjög góður matur, þetta var samt ekkert öðruvísi en venjuleg hátíðarhöld svo sem...

Á föstudaginn var svo black friday! það er stærsti verslunardagur ameríkana, alltaf svaka tilboð í gangi. Við yfirgáfum húsið kl. 4 am!! ég, juli,lisa og leslie. Hef sjaldan séð þetta jafn svakalegt, fólk stóð í röðum fyrir utan búðirnar áður en þær opnuðu...við vorum ekki alveg svo sjúkar... Búðirnar voru svo troð fullar af fólki og maður þurfti að bíða í klst röð til að borga...þetta var upplifun, en samt þess virði fyror lisu því hún náði nokkuð góðum tilboðum...ég náði líka að verla smá sem var sweet...
Um kvöldið var smá hittingur hjá steven... Grill og video og eitthvað dót. Ég var samt mjög stutt því við ætluðum að keyra til Bend á laug og fara á skíði en við hættum svo við því það var ekki nægur snjór!! var ekekrt smá svekt... förum vonandi næstu helgi...

Í gær fórum við í bíó öll familían og svo að horfa á þegar það var kveikt á jólatrénu í albany... Svo pizza einsog alltaf á laugardögum...þau eru búin að breyta mér og ég er byrjuð að setja ranch og parmesan ost á pizzuna mína!! haha

Í dag var bara kirkja og svo jóla skreytingar eftir það...fórum út og hjóum niður tre og skreytum það svo, veit það er mjög snemt en þau taka það alltaf niður fyrir áramót... Svo er ég bara búin að vera eitthvað að dingla mér...

Held að þetta sé komið meira en nóg í bili, vona að einhvern nenni að lesa og kommenta!

DSC00208.JPG
Ég og steven dansfélagi!

Endalaus ást...
Arnrún Þorsteinsdóttir

blehh

11. nóvember 2007 klukkan 02:01
ég ætla að koma með ör stutt blogg bara þvi ég beilaði á bloggi síðustu helgi. 

Gerði ekkert merkilegt þá, Síðasti fóbó leikurinn á föstudaginn og Marrydith gisti hjá mér. 
Fórum aðeins að versla með Lisu, Juliu og Mikaylu á laugardeginum og man ekki hvort eitthvað meira gerðist. Sunnudagur var svo bara kirkja + tjill.

Í vikinni var svo bara dans æfingar á hverjum degi, Keppni næstu helgi. Byrjuðum á Novelty dansinum... ég er að dansa við Steven, man ekki hvort ég sagði það í síðasta bloggi. Hlakka alveg frekar mikið til enn verð samt að æfa mig miklu meira til að verða ánægð.

Á fimmtudaginn fór ég með Alyssu, Steven,Derek,Lauru og Marcus á sheries eftir æfingu. Svo gosti ég hjá alyssu því það var enginn skóli á fös. Steven og derek voru með okkur, bara eitthvað tjill í gangi. 
Á laugardaginn svaf ég svo leeengi og þegar eg vaknaði var fjölskyldan mín farin til portland( vissi af því) en þau gleymdu að skilja eftir opið svo ég var læst úti! hehe Alyssa þurfti að vinna svo ég fór til derek og tjillaði með honum, steven og brad mest allan daginn. Gaman að upplif stráka tal!! haha, var líka lamin nokkru sinnum, en ég gat alltaf svarað fyrir mig. 
Um kvöldið var svo party hjá Alyssu en ég gat ekki farið því ég þurfti að fara á dans æfingu í morgun kl.8 og enginn gat keyrt mig:( það sökkaði soldið, en ég fann mér annað að gera:)

Í dag sór ég bara á þessa dans æfingu sem var btw 4 tímar!! Er svo  bara búin að vera tjilla heima í allan dag..æfa dansinn smá og svona.
Held ég verði bara heima í lvöld að éta pizzu og horfa á movies! er boðin í lítið vídjó teiti enn nenni ekki að biðja um far og svo þyrfti ég aftur far heim og vesen svooo...ég varð bara félgasskítur.

Enn allavega, veit ekki hvort ég bloggi næstu helgi því ég verð að keppa og þarf að gista hjá MArrydith alla helgina... þannig við sjáum til,
Sakna ykkar allra...ást
Arnrún Þorsteinsdóttir

stytt útgáfa...

29. október 2007 klukkan 21:13
Ég bloggaði ágætis blogg í gær.... er það strokaðist út. Var frekar pirruð svo ég nennti ekki að blogga aftur.
Þetta blogg verður aðeins styttra og örugglega ekki jafn áhugavert.

Síðan síðasta blogg var ritað hef ég:

- farið á 3 powder puff æfingar. Allar fyrir skóla, var samt alveg frekar skemmtilegt þegar ég var farin að ná reglunum.

- Powder puff leikurinn var svo á miðvikudaginn. Þurfti endilega að vera rigning og skít kalt svo við vorum allar skjálfandi, það var samt mjög gaman að spila. Ég spilaði samt bara vörn, var safety. Vildi ekki spila neitt annað. Náði að stoppa eina stelpu svo ég gerði allavega eitthvað gagn. Völlurinn var mjög blautur og drullugur en það var allt þess virði þegar við unnum! það var algjör snilld!

-Eftir leikinn fór ég með Derek og fl. fólki að borða á Sheri´s, fékk mér samt ekki neitt því ég og Marrydith erum byrjaðar í megrun, megum bara svindla á laugardögum.

-Þessi vika í skólanum var homecoming vikan. Var samt ekekrt spes nema það var leikur og ball föstudaginn. Skólinn okkar er ekki einsog flestir aðrir skólar svo maður dressar sig ekki upp fyrir ballið nema maður sé einn af prinsunum eða prinsessunum. Ballið var bara alveg ágætt.

-Gisti svo hjá Marrydith Bökuðum Sugar cookies á laugardags morgninum og skreyttum þær einsog maður gerir með pipar kökur.

-Gisti svo hjá Alyssu á laugardeginum. Horfðum á 2 myndir og fórum í pottinn og svona.

-Sunnudagurinn fór bara í tjill, þvo þvott og eitthvað slíkt.

-Í dag er mánudagur. Ég er semí veik heima... samt eiginlega blanda af leti og veiki:$ Kláraði Greys anatomy seríuna mína...get ekki beðið eftir að smá næstu!

Eitt sem ég var óánægð með í síðustu viku er hvað fáir kommentuðu...é vil vita hverjir eru að lesa bloggin mín og það getur nú ekki tekið svo langan tíma að skrifa ör stutt kveðju sem yljar me´r um hjartarætur:D

Þetta er nóg í bili...ást og umhyggja...
Arnrún Þorsteinsdóttir

powder puff/flag football

22. október 2007 klukkan 01:24
Jæja ég ætla að henda inn einu stuttu bloggi fyrst það er sunnudagur...

Fékk einkunirnar mínar sendar heim í vikunni, er með A í öllu. Sem er bara nice... 
Skólinn gengur sem sagt bara vel. 
Síðasta fimmtudag byrjuðu powder puff æfingar. Það er sem sagt amerískur fótbolti fyrir stelpur. Í staðin fyrir að tækla hvor aðre niður erum við með fána á okkur sem þarf að toga í. Er bara búin að fara á 2 æfingar (af 5) og þetta er bara nokkuð skemmtilegt fyrir utan að ég er ömurle í að kasta rúbbí bolta! 
Svo á miðvikudaginn spilum við á móti Junior stelpunum í skólanum. Við VERÐUM að vinna! Sumar af Junior stelpunum eru svo pirrandi..
Næsta vika er líka Homecomming vikan, sem þýðir að það er held ég ball á föstudaginn.

Síðasta föstudag fór ég á fótboltaleik Lebanon vs. West albany(skólinn sem mark og eric eru í) Við töpuðum svo illa!! 0-56 haha...þetta sökkaði, strákarnir voru ekkert í alltof góðu skapi eftir leikinn.
Á laugardaginn gisti ég hjá Alyssu vinkonu minni. Vorum um 8 krakkar og bara frekar skemmtilegt, ætla nú ekkert að fara útí meiri díteils í þessu bloggi.

Þarf að fara læra þar sem það er stæ próf á morgun og svo þarf ég að vakna kl. 6 til að fara á powder puff æfingu! sjiiiii er ekki að nenna því.

Allavega þangað til næst...
Arnrún Þorsteinsdóttir

Prófíll

  • Nafn: Arnrún Þorsteinsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Skiptinemi
  • Hjúskaparstaða: Laus
  • Um mig: Ég er ung stúlka úr vesturbæ reykjavíkur sem er núna stödd í Ameríkunni. Er hér sem skipti nemi í eitt ár í litlum bæ sem heitir Lebanon, Oregon. Ákvað að halda uppi smá vefdagbók fyrir aðdáendur mína....okei bæbæ

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...